Vetrarleikar Fáks verða haldnir laugardaginn 15. febrúar klukkan 12:00. Skráning fer fram í anddyri TM-Reiðhallarinnar milli 10:00 og 11:30. Skráning fer fram í anddyri reiðhallarinnar og er skráningargjald 2000 kr, frítt fyrir polla og börn.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Pollaflokkur
  • Barnaflokkur minna vanir
  • Barnaflokkur meira vanir
  • Unglingaflokkur
  • Ungmennaflokkur
  • Konur II
  • Karlar II
  • Konur 1
  • Karlar 1

Fyrirkomulag mótsins er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöll klukkan 12:00.

Aðrir flokkar keppa á Hvammsvellinum. Vöfflukaffi verður í reiðhöllinni að móti loknu.

Fákur áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í hverjum þeirra.