Í gærkvöldi fór fram Uppskeruhátíð Fáks í félagsheimilinu. Þar voru verðlaunaðir stigahæstu knapar í öllum flokkum.

Fáksfélagar voru sem fyrr í fremstu röð á mótaárinu 2023 og verður spennandi að fylgjast með þeim og öðru keppnisfólki spreyta sig á næstkomandi keppnis- og Landsmótsári.

Hér fyrir neðan má sjá sigurvegara sinna flokka og helsta árangur þeirra á árinu.

Íþróttakona Fáks – Ólöf Helga Hilmarsdóttir

  • Reykjavíkurmeistari í tölti T2 ásamt öðrum góðum árangri á mótinu
  • 10. sæti á Íslandsmóti í tölti T2
  • 3. sæti í T3 á íþróttamóti Spretts
  • 4. sæti í tölti T3 og T4 á íþróttamóti Harðar

Íþróttakarl Fáks – Teitur Árnason

Teitur átti því miður ekki heimangengt.

  • Reykjavíkurmeistari í fimmgangi F1 og 100m skeiði ásamt öðrum góðum árangri á mótinu
  • Íslandsmeistari í tölti T2, fimmgangi F1 og 100m skeiði
  • 2. sæti í 100m skeiði á heimsmeistaramótinu í Hollandi.
  • Góður árangur á öðrum mótum.

Áhugamannaflokkur – Saga Steinþórsdóttir og Sævar Örn Eggertsson

  • Saga Steinþórsdóttir
    • Reykjavíkurmeistari í V2.
    • 1. sæti í gæðingatölti á Gæðingamóti Fáks og Spretts
    • 1. sæti í tölti T4 og fjórgangi V2 á íþróttamóti Harðar
    • 1. sæti í tölti T4 og fjórgangi V2 á Hafnarfjarðarmeistaramóti
  • Sævar Örn Eggertsson
    • Reykjavíkurmeistari í T4 ásamt öðrum góðum árangri á mótinu
    • 2. sæti í T4 á íþróttamóti Harðar
    • 2. sæti í T3 á íþróttamóti Spretts
    • Ásamt öðrum góðum árangri

Ungmennaflokkur – Eva Kærnested og Arnar Máni Sigurjónsson

Eva og Arnar Máni áttu því miður ekki heimangengt.

  • Eva Kærnested
    • Góður árangur á Reykjavíkurmeistaramóti í T1 og V1
    • 8. sæti í V1 og T1 á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna
    • 1. sæti í tölti T3 í Blue Lagoon mótaröðinni
    • Ásamt öðrum góðum árangri.
  • Arnar Máni Sigurjónsson
    • Reykjavíkurmeistari í tölti T1, fjórgangi V1 og gæðingaskeiði PP1
    • 3. sæti á Gæðingamóti Fáks og Spretts
    • Íslandsmeistari í T2, 2. sæti í fimmgangi og 7. sæti í fjórgangi.
    • 1. sæti í T4 og V2 á Suðurlandsmóti

Unglingaflokkur – Sigurbjörg Helgadóttir og Matthías Sigurðsson

  • Sigurbjörg Helgadóttir
    • Reykjavíkurmeistari í tölti T3 og fjórgangi V2
    • 2. sæti í unglingaflokki gæðinga á Íslandsmóti
    • 3. sæti í tölti T1 á Íslandsmóti barna og unglinga og 5. sæti í fjórgangi V1.
    • 1. sæti í gæðingaskeiði í Meistaradeild Æskunnar og 2. sæti í fjórgangi V1 í sömu deild.
  • Matthías Sigurðsson
    • 6 faldur Reykjavíkurmeistari í unglinga og ungmennaflokkum.
    • 3 Íslandsmótstitlar í unglingaflokki, í T4, F2 og samanlagður
    • 2. sæti á Íslandsmóti ungmenna í T2 og gæðingaskeiði.
    • Ásamt frábærum árangri á öðrum mótum

Barnaflokkur – Þórhildur Helgadóttir og Sigurður Ingvarsson

  • Þórhildur Helgadóttir
    • Reykjavíkurmeistari í tölti T3 og fjórgangi V2
    • Sigurvegari barnaflokks á Gæðingamóti Fáks og Spretts
    • Íslandsmeistari í T4 og V2
    • 1. sæti í Tölti T3 á íþróttamóti Harðar
  • Sigurður Ingvarsson
    • Reykjavíkurmeistari í T7
    • 2. sæti á gæðingamóti Harðar
    • 4. og 5. sæti í tölti T7 og fjórgangi V2 á Suðurlandsmóti yngri flokka
    • Góður árangur á Gæðingamóti Fáks