Uppskeruhátíð Fáks verður haldin í Félagsheimilinu okkar fimmtudaginn 24. nóvember næstkomandi klukkan 19:00.

Fákur ætlar að bjóða upp á kótilettur og pizzur fyrir börnin. Hvetjum félagsmenn til að mæta. Skráning í matinn fer fram <hér>.

Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2022 í eftirfarandi flokkum:

  • Besti keppnisárangur í barnaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í unglingaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í ungmennaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í áhugamannaflokki, kona og karl
  • Íþróttakona og íþróttakarl Fáks

Þá óskar Fákur eftir upplýsingum um árangur félagsmanna á íþrótta- og gæðingamótum á árinu 2022. Viðmiðunarreglur við val á afreksknöpum má sjá <hér>.

Árangursupplýsingar skulu berast á eftirfarandi formi í siðasta lagi miðvikudaginn 16. nóvember.

Keppnisárangur 2022 – Form til útfyllingar