Opið er fyrir umsóknir í félagshesthús Fáks veturinn 2022 til 2023.

Skilyrði fyrir umsókn:

  1. Sá aðili sem sótt er um fyrir sé milli 10-18 ára aldurs. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
  2. Sá aðili sem sækir um hefur hug á að taka virkan þátt í félagshesthúsi Fáks, sinnir sínum hesti og tekur þátt í að vinna þau verk sem þarf að vinna í félagshesthúsinu.
  3. Hestur sem sótt er um pláss fyrir er taminn og laus við húslesti. Umsjónarmaður hesthúss sér um að raða hestum í stíur. Ekki er hægt að sækja um eins hesta stíur.
  4. Mánaðargjald per hest er 27.500 krónur. Innifalið er hey og undirburður.
  5. Allir umsækjendur fá póst hvort þeim hafi verið úthlutað plássi eða ekki.
  6. Barn/unglingur verður skráð í hestamannafélagið Fák ef það er ekki félagi fyrir.
  7. Foreldrar og forráðamenn skulu vera skuldlausir við félagið.

Hér er hlekkur á umsóknarformið