Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á liðkandi og styrkjandi vinnu í þjálfun hestsins, ábendingakerfið og samspil ábendinga og ræðum skipulag þjálfunar út frá þjálfunarstigum reiðmennskunnar og þörfum knapa og hests.

Þjálfunarstigin eru kerfi um þjálfun hestsins þar sem eitt leiðir af öðru frá grunnþjálfun og upp skalann upp í safnandi vinnu. Það er öllum knöpum mikilvægt að hafa þjálfunarstigin til hliðsjónar við þjálfun hesta sinna, og geta staðsett sig í kerfinu á hverjum tíma.

Við ræðum líka um misstyrk, og praktískar æfingar til þess að vinna með að jafna hann, hvað ber að varast og ýmislegt spennandi. Námskeiðið byggist á verklegum reiðtímum og bóklegri kennslu.

Dagskráin er eftirfarandi:
24. september – laugardagur fyrir hádegið – paratímar
Bóklegt í hádeginu laugardag 12:20-13:00

24. september – laugardagur eftir hádegið -paratímar
25. september – sunnudagur – einkatímar fyrir og eftir hádegið

Til að hægt sé að halda námskeiðið þá miðast skráning við að 10 manns skrái sig.
Námskeiðið verður haldið í C tröð Didda höll