Stjórn hestamannafélagsins Fáks hefur ákveðið að TM-reiðhöllinni verður lokað frá og með miðnætti í kvöld 24. mars og þar til samkomubanni lýkur 13. apríl.  

Er þetta gert eftir leiðbeiningum og í ljósi yfirlýsinga síðustu daga frá heilbrigðisráðherra, sóttvarnarlækni, landlækni, almannavörnum, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur.