Á morgun laugardag verður sannkölluð veisla í TM-Reiðhöllinni í Víðidal þegar Styrktarmót landsliðs Íslands í hestaíþróttum fer fram. Landsliðsknaparnir okkar mæta með sína bestu hesta ásamt fleiri valinkunnum knöpum.

Happdrættismiði á 1000 kr. og stóðhestavelta á kr. 35.000.

Kl. 12.00 miðasala opnar í TM-reiðhöllinni, miðaverð 3.500 kr.

Kl. 18.30 húsið opnar – Páskalamb í veislusal reiðhallarinnar, lambalæri og kótilettur á kr. 2.500.

Hreimur Örn Heimisson og Karlakór Kjalnesinga sjá um upphitun 

Kl. 20.30 Þeir allra sterkustu

Dagskrá 

  • U21-landsliðshópur LH
  • Stóðhestasýning
  • Fimmgangur – úrslit
  • Stóðhestasýning

           – Hlé –

  • Skeiðkeppni – flugskeið
  • Fjórgangur – úrslit
  • Stóðhestasýning
  • Dregið í happdrætti
  • Tölt – úrslit