Íþróttamót Fáksmanna, Reykjavíkurmeistaramótið, er jafnan stærsta og sterkasta íþróttamót Íslandshestamennskunar á hverju ári. Mótið fer fram í Víðidalnum dagana 29. júní – 5. júlí.  

Mótið sækja sterkustu keppendurnir og keppt er í yngri flokkum, 1. og 2. flokki, sem og meistaraflokki. Í fyrra voru þátttakendur yfir 300 talsins og skráningar þeirra í mismunandi greinar yfir 700.

Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2020“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Einungis verður tekið er við skráningum í Sportfeng dagana 8. – 22. júní. Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og/eða FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 7.500 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.000)
  • 7.000 kr – 1. og 2. flokkur
  • 5.500 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 5.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

 Það verður mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um næstu mánaðarmót og allir velkomnir að koma og fylgjast með.

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka náist næg þátttaka:

#Flokkur Keppnisgrein
1BarnaflokkurTölt T3
2BarnaflokkurFjórgangur V2
3BarnaflokkurTölt T7
4Opinn flokkurSkeið 250m P1
5Opinn flokkurSkeið 150m P3
6Opinn flokkurFlugskeið 100m P2
7Opinn flokkur – 1. flokkurTölt T3
8Opinn flokkur – 1. flokkurTölt T4
9Opinn flokkur – 1. flokkurFjórgangur V2
10Opinn flokkur – 1. flokkurFimmgangur F2
11Opinn flokkur – 1. flokkurGæðingaskeið PP1
12Opinn flokkur – 2. flokkurTölt T3
13Opinn flokkur – 2. flokkurTölt T4
14Opinn flokkur – 2. flokkurFjórgangur V2
15Opinn flokkur – 2. flokkurFimmgangur F2
16Opinn flokkur – 2. flokkurGæðingaskeið PP1
17Opinn flokkur – 2. flokkurTölt T7
18Opinn flokkur – MeistaraflokkurTölt T1
19Opinn flokkur – MeistaraflokkurTölt T2
20Opinn flokkur – MeistaraflokkurTölt T3
21Opinn flokkur – MeistaraflokkurFjórgangur V1
22Opinn flokkur – MeistaraflokkurFjórgangur V2
23Opinn flokkur – MeistaraflokkurFimmgangur F1
24Opinn flokkur – MeistaraflokkurFimmgangur F2
25Opinn flokkur – MeistaraflokkurGæðingaskeið PP1
26UnglingaflokkurTölt T3
27UnglingaflokkurTölt T4
28UnglingaflokkurFjórgangur V2
29UnglingaflokkurFimmgangur F2
30UnglingaflokkurGæðingaskeið PP1
31UnglingaflokkurTölt T7
32UngmennaflokkurTölt T1
33UngmennaflokkurTölt T2
34UngmennaflokkurTölt T3
35UngmennaflokkurFjórgangur V1
36UngmennaflokkurFjórgangur V2
37UngmennaflokkurFimmgangur F1
38UngmennaflokkurFimmgangur F2
39UngmennaflokkurGæðingaskeið PP1