Boðið er upp á námskeið fyrir útreiðafólk sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn, læra að skilja hestinn betur og kenna hestinum á umhverfið.

Kennsla fer fram í hópum og einkakennslu. Fyrsti tími er bóklegur og í framhaldi hefst verkleg kennsla það verða 10 tímar. Kennt verður á þriðjudögum í TM reiðhöllinni. Kennsla hefst 5. febrúar.

Verð:  35.000.-  Skráning fer fram í gegnum netfangið ss@sigrunsig.com þar sem fram kemur nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og sími. Útreiða/hesthúsfélagar geta tekið fram ef þeir vilja vera saman.

Kennarar eru: Henna Siren og Sigrún Sig