Opna gæðingamót Spretts og Fáks fer fram dagana 4.-6. júní 2021 á félagssvæði Spretts.

Skráning hefst 25. maí og lýkur 31 maí á miðnætti. Skráning fer fram á Sportfeng, www.sportfengur.com.

Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 6.500 fyrir fullorðna en 4.500 kr fyrir börn og unglinga. Tölt T1 6500 kr og skeiðgreinar 5000 kr

Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt
ATHUGIÐ: Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Ekki er hægt að bæta við skráningum eftir að ráslistar hafa verið birtir.

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:

  • A-flokk gæðinga
  • A-flokk gæðinga áhugamenn
  • B-flokk gæðinga
  • B- flokk gæðinga áhugamenn
  • C- flokk gæðinga
  • Gæðingatölt 1. flokkur
  • Gæðingatölt 2. flokkur
  • A-flokk ungmenna
  • B- flokk ungmenna
  • Unglingaflokkur
  • Barnaflokkur
  • Gæðingatölt 1. flokkur
  • Gæðingatölt 2. flokkur
  • Tölt T1 meistaraflokk
  • Gæðingaskeið PP1- Opinn flokkur
  • 100m skeið P2- Opinn flokkur
  • Pollar teymdir og pollar ríðandi ef veður leyfir, skráning auglýst þegar nær dregur.

Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni https://www.lhhestar.is/static/files/Log_LH/kafli-7-reglugerdir-um-gaedingakeppni.pdf

Sprettur og Fákur