Námskeið fyrir börn og unglinga með Vigdísi Matthíasdóttur verður dagana 14. – 15. mars n.k. Vigdís hefur átt góðu gengi að fagna í keppni allt frá blautu barnsbeini og sigraði m.a. 100m skeið á Landsmótinu 2014 á Hellu. Vigdís hélt tvö námskeið fyrir okkur síðasta vetur og vöktu þau mikla lukku meðal þeirra er sóttu námskeiðin.

Námskeiðið verður þannig uppsett að hver nemandi færi einkatíma laugardag og sunnudag ca 40 mín. Námskeiðið er m.a. tilvalið fyrir þau sem stefna á keppni. Námskeiðið fer fram í TM-Reiðhöllinni og reiðhöllinni hans Didda.

Aldurstakmark er 10 -17 ára og er eingöngu fyrir Fáksfélaga. Námskeiðsgjald er krónur 22.000.- Athugið takmarkað framboð, fyrstur kemur fyrstur fær.

Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/