Laugardagskvöldið 12. janúar verður blásið til Hrossakjötsveislu Limsverja í félagsheimili Fáks.

Húsið opnar kl: 19:00 og sest verður að borðum kl. 20:00.

Galdraðir verða fram gómsætir réttir sem fara vel í maga og aðrir sem renna ljúlega í eyru.

Forsala aðgöngumiða á betra verðinu verður í Guðmundarstofu, félagsheimili Fáks, á morgun fimmtudag frá 19:30 til 21:30.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og keyrum árið í gang.

Nánari upplýsingar veitir Helgi í síma 698-8370.