Gæðingamót Fáks – Úrtaka fyrir Landsmót í Reykjavík 2024 fer fram dagana 23.-26. maí næstkomandi á Hvammsvelli í Víðidal
Gæðingaflokkarnir eru eingöngu fyrir Fáksfélaga þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða en íþróttagreinar, skeiðgreinar og tölt, eru öllum opnar.

Um tvöfalda úrtöku er að ræða og verður fyrirkomulagið eftirfarandi:

  • Fimmtudagur 23. maí – Fyrri umferð, allir gæðingaflokkar
  • Laugardagur 25. maí – Seinni umferð, Tölt T1 og skeiðgreinar.
  • Sunnudagur 26. maí – Úrslit: Árangur úr fyrri umferð gildir til úrslita.

Á síðastliðnu Landsþingi LH var samþykkt breyting á reglu 5. í reglugerð um Lands- og fjórðungsmót á þann veg að þátttakendum er heimilt að taka þátt í hvorri umferð sem er eða báðum.

Skráning á mótið verður auglýst þegar nær dregur.

Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr fyrri eða seinni umferð.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

  • A flokkur Gæðinga
  • B flokkur Gæðinga
  • Ungmennaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Barnaflokkur
  • Pollaflokkur
  • 100m Skeið
  • 150m Skeið
  • 250m Skeið
  • Tölt T1