Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 3. september nk. með bóklegum tíma í Guðmunarstofu. Verklegir tímar hefjast svo 4. september og kemur hver þátttakandi með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s

-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.
Verð: 40.000.-

Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Skráning á robbi@hestar.is og gott að gera það sem fyrst til að tryggja pláss og tíma en í tölvupóstinum þarf að koma fram;
Nafn, kennitala, ósk um tímsetningu (kl. 16-17-18-19-20) og gsm númer.

Námskeiðið er öllum opið.