Félagsgjöld Fáks fyrir árið 2022 munu birtast í dag í heimabanka félaga.

Á síðasta aðalfundi var samþykkt að gjald fyrir fullorðna sé 16.500 kr og fyrir ungmenni 6.000 kr.
70 ára og eldri greiða ekki félagsgjöld og sama á við um 17 ára og yngri.

Án félagsgjalda er erfitt fyrir Fák að halda úti þjónustu sem allir nota árið um kring stundi þeir hestamennsku í Víðidal og Almannadal.

Hvað gerir hestamannafélagið Fákur fyrir þig?

  • Félagið heldur úti öflugri hagsmunagæslu fyrir félagsmenn og hesthúsaeigendur á svæðinu.
  • Félagið hefur byggt upp myndarlegt reiðvegakerfi í samstarfi við Reykjavíkurborg.
  • Félagið heldur úti öflugu félagsstarfi fyrir alla aldurshópa félagsmanna. Sem dæmi má nefna að:
    • Félagið rekur félagshesthús fyrir börn og unglinga sem eru að taka sín fyrstu skref í hestamennsku.
    • Félagið heldur úti öflugu æskulýðsstarfi.
    • Félagið skipuleggur námskeiðahald og fræðslustarf.
    • Félagið skipuleggur sameiginlega reiðtúra félagsmanna.
    • Félagið skipuleggur viðburði fyrir heldri Fáksfélaga.
    • Félagið skipuleggur fjölmarga viðburði, litla og stóra, fyrir félagsmenn og má þar m.a. nefna Herra- og Kvennakvöld Fáks, Þorrablót og miðnæturreið í Gjárétt.
  • Félagið þjónustar og viðheldur þeim mannvirkjum sem félagið hefur byggt upp, t.a.m. TM-Reiðhöllina, keppnisvelli í Almannadal og Víðidal, félagsheimili Fáks og félagshesthúsið.
  • Félagið mokar reiðvegi á athafnasvæði Fáks til að gera félagsmönnum það léttara að stunda útreiðar yfir snjóþyngstu mánuðina.