Í hestamannafélaginu Fáki í Víðidal er starfræktur hestaíþróttaklúbbur undir nafninu Fákar og Fjör. Um kennsluna sjá þær Sif Jónsdóttir og Karen Woodrow, en báðar eru þær menntaðir reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum.

Fákar og fjör býður upp á reiðkennslu á ársgrundvelli þar sem við leggjum áherslu á fjölbreytt starf og að allir geti fundið sig í hestamennskunni. Klúbburinn hentar bæði byrjendum og vönum hestakrökkum.

Við höfum í gegnum hestaíþróttaklúbbinn reynt að koma á móts við þá sem hafa áhuga á því að stunda íþróttina en hafa ekki aðgang að hesti. Kennslan fer fram 1x – 2x í viku á félagssvæði Fáks.

  • Skráning og nánari upplýsingar má finna með því að ýta á hnappinn hér að neðan:

Hægt er að fá pláss í Félagshesthúsi Fáks ef að nemendur eru með eigin hest. Mánaðargjald í félagshesthúsinu er 32.000 krónur.

Hér er hægt að sækja um pláss fyrir eigin hest í félagshesthúsi: