FT Félag tamningamanna og LH Landsamband hestamannafélaga heldur opin fund um þróun keppnismála fimmtudag 12. september í veislusal Fáks í TM-Reiðhöllinni klukkan 19:30.

Eru knapar og dómarar að tala sama tungumál?

Rætt verður um:

  • Hvað hefur þróast vel á síðasta keppnistímabili?
  • Hvað má betur fara?
  • Hvernig kemur mat á reiðmennsku fram í dómum?

Hvetjum alla dómara og knapa að mæta !

Fundarstjóri verður Thelma L. Tómasson

Frummælendur:
Súsanna Ólafsdóttir formaður FT
Lárus Ástmar Hannesson formaður LH 
Erlendur Árnason formaður GDLH
Halldór Gunnar Viktorsson formaður HíDí
Olil Amble knapi
Anton Páll Níelsson reiðkennari aðstoðarþjálfari landsliðs