Einkatímar með Vigdísi Matthíasdóttur á miðvikudögum í september!

Vigdís hefur átt góðu gengi að fagna í keppni allt frá blautu barnsbeini og sigraði m.a. 100m skeið á Landsmótinu 2014 á Hellu. Námskeiðið er fyrir alla aldurshópa, börn og fullorðna.

Námskeiðið verður þannig uppsett að hver nemandi fær fjóra 40 mínútna einkatíma sem eru sniðnir að hverjum og einum. Námskeiðið er m.a. tilvalið fyrir hinn almenna reiðmann. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 7. september næstkomandi.

Námskeiðið kostar 38.000 kr. og skráning fer fram á Sportfeng