Þá styttist í Dag reiðmennskunnar og Stórsýningu Fáks hjá okkur í Lýsishöllinni í Víðidal. Dagur reiðmennskunnar hefst klukkan 13:00 og fram koma margir af okkar færustu reiðkennurum, þjálfurum og sýnendum.
Dagskrá: | |
13:00 – 13:50 | Reiðkennaraefni Háskólans á Hólum |
13:50 – 14:00 | Hlé |
14:00 – 14:50 | Reiðkennaraefni Háskólans á Hólum |
14:50 – 15:10 | Hlé |
15:10 – 15:40 | Súsanna Sand – Reiðkennari og gæðinga- og íþróttadómari |
15:40 – 16:20 | Mette Mannseth tamningameistari og yfirreiðkennari Háskólans á Hólum |
16:20 – 16:30 | Hlé |
16:30 – 17:15 | Anton Páll Níelsson reiðkennari ásamt nemendum |
17:30 – 18:00 | Þjálfarastund með Jakobi Svavari Sigurðssyni afreksknapa |
18:00 – 20:30 | Hlé á dagskrá |
20:30 – 22:30 | Stórsýning Fáks |
22:45 – 01:00 | Trúbator partý með Sæþóri Má Hinrikssyni í veislusal |
Í anddyri reiðhallarinnar verða ýmsar vörukynningar fyrir gesti.
Um kvöldið verður svo Stórsýningin Fáks á sínum stað klukkan 20:30 og í framhaldi verður trúbator partý í veislusal reiðhallarinnar með Skagfirðingnum Sæþóri Má Hinrikssyni.
Tímasett dagskrá verður auglýst fljótlega.
Miðasala fer fram á Tix og á staðnum í anddyri reiðhallarinnar 29. mars.
Hlökkum til að sjá ykkur í Víðidal!
Miðaverð: | |
Fullorðnir – Báðir viðburðir | 6.900 kr |
Fullorðnir – Dagur reiðmennskunnar eingöngu | 3.900 kr |
Fullorðnir – Stórsýning Fáks eingöngu | 3.900 kr |
Unglingar og ungmenni (14-21 ára) – Báðir viðburðir | 4.900 kr. |
Unglingar og ungmenni (14-21 ára) – Dagur reiðmennskunnar eingöngu | 2.500 kr |
Unglingar og ungmenni (14-21 ára) – Stórsýning Fáks eingöngu | 2.500 kr |
Börn 13 ára og yngri – Stórsýning Fáks | 1.900 kr. |
Börn 13 ára og yngri – Dagur reiðmennskunnar | Frítt |