Fákur óskar eftir upplýsingum um árangur knapa í ungmenna-, áhugamanna- og fullorðinsflokki á keppnisárinu 2024.

Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2023 í eftirfarandi flokkum:

  • Besti keppnisárangur í ungmennaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í áhugamannaflokki, kona og karl
  • Íþróttakona og íþróttakarl Fáks

Viðmiðunarreglur við val á afreksknöpum má sjá <hér>.

Verðlaun verða veitt á sameiginlegri árshátíð Fáks og Spretts. Nánari upplýsingar um viðburðinn verða veittar síðar.

Uppskeruhátíð barna fer fram í Arnarfelli, veislusal Spretts, þann 5. nóvember næstkomandi.