Almannadalsmótið verður haldið laugardaginn 15. maí klukkan 12:00.

Keppt verður tölti og skeiði. Töltkeppnin verður með T7 fyrirkomulagi; fyrst er riðið hægt tölt og svo snúið við og sýnd frjáls ferð á tölti.

Keppt er í eftirfarandi greinum:
Pollaflokki – Skráning fer fram hér: Skráningarform polla
Barnaflokki
Unglingaflokki
Opinn flokkur – 2. flokkur – 18 ára og eldri / minna vanir
Opinn flokkur – 1. flokkur – 18 ára og eldri / meira vanir
100 m skeið.

Skráningargjald er 2.000 krónur.

Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/ og er skráning opin til miðnættis á föstudaginn 14. maí. Mögulegt er að skrá sig á staðnum á laugardagsmorgni klukkan 11:00 en við hvetjum sem flesta að nýta sér Sportfeng svo ekki verði örtröð á staðnum.

Að loknu móti verða grillaðar pylsur fyrir þátttakendur og gesti í yfirbyggða hringgerðinu.