Boðað er til aðalfundar hestamannafélagsins Fáks þann 10. maí næstkomandi klukkan 20:00 í félagsheimili Fáks.

Reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir fund.

Dagskrá aðalfundar verður birt 7 dögum fyrir fund.

Framboðum til stjórnar, þar á meðal formanns, skal skila skriflega til skrifstofu félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Kosið er um eftirfarandi sæti:
Formann
Ritara
Tvo meðstjórnendur

Í núverandi stjórn gefa kost á sér til áframhaldandi setu:
Hjörtur Bergstað til formanns,
Sigurbjörn Þórmundsson, meðstjórnandi