Mánudaginn 25.  apríl er hinn árlegi hreinsunardagur Fáksmanna.  Hreinsunardagurinn hefst kl. 16:30 og lýkur með grilli í Guðmundarstofu frá kl. 18:30 – 19:00.

Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að hjálpa til við að halda svæðinu OKKAR hreinu og snyrtilegu. Okkar svæði, okkar rusl og okkar að hafa það snyrtilegt og hreint. Ruslapoka er hægt að nálgast í Reiðhöllinni (í andyrinu) en eins verður gengið í hesthús og afhentir pokar.

Þeir sem eiga bagga eða rúllur fyrir utan hesthús eru beðnir um að ganga frá endum. (fjúkandi plast getur fælt hesta!).
Gámur verður staðsettur sunnan við TM-reiðhöllina.

Ekki er tekið við rusli úr hesthúsum.

Margar hendur vinna létt verk!