Aðalfundur Fáks fyrir starfsárin 2019 og 2020 verður haldinn 18. maí næstkomandi klukkan 20:00 í reiðhöllinni Víðidal.

Dagskrá:

  • Hefðbundin aðalfundarstörf
  • Lagabreytingar
  • Samþykki um sölu á lóðum
  • Samþykki um byggingar á reiðhöllum á félagssvæði Fáks í Almannadal og Víðidal

Framboðum til stjórnar skal skila skriflega til skrifstofu félagsins í reiðhöllinni í Víðidal eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Hjörtur Bergstað núverandi formaður gefur kost á sér til áframhaldandi formannssetu.

Aðrir stjórnarmeðlimir Fáks gefa einnig kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Þau eru Árni Geir Eyþórsson, Hlíf Sturludóttir, Íva Rut Viðarsdóttir, Leifur Einar Arason, Sigurbjörn Þórmundsson og Þórunn Eggertsdóttir.

Á aðalfundi er kosið um eftirfarandi stöður:

  • Formaður til 1 árs
  • Gjaldkeri til 2 ára
  • Meðstjórnandi til 2 ára
  • Meðstjórnandi til 2 ára
  • Ritari til 1 árs
  • Meðstjórnandi til 1 árs
  • Meðstjórnandi til 1 árs

Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins frá 6. maí í reiðhöllinni , félögum til athugunnar.

Þá liggja einnig frammi á skrifstofu tillögur stjórnar að lagabreytingum.

Hvetjum við alla félagsmenn að mæta.