“Sleepover” æskulýðsdeildar  verður í félaghsheimli Fáks nk. föstudagskvöld (9. jan). Borðaður verður góður matur (pizzur og snakk 🙂 ), farið í leiki, spilað og horft á mynd. Það sem þarf að hafa með er dýna, svefnpoki, náttföt og tannbursti. Mæting er kl. 19:30 á föstudagskvöldið og þurfa foreldrar að sækja fyrir hádegi á laugardeginum. Nokkrir foreldrar munu gista, stýra dagsskrá og passa upp á hópinn og er þetta hugsað fyrir 12 – 17 ára.

Það má taka með spil, bók og mynd sem allir geta horft á. Einnig þarf að klæða sig eftir veðri (útiföt).

Allir að mæta og hafa gaman saman.