Bókleg kennsla mun fara fram í október  og svo mun verkleg kennsla hefjast í janúar. Markmiðið með þessu er að auka gæði bóklegu kennslunnar og jafnframt gera námið skilvirkara og hagkvæmara fyrir nemendur. Nemendur geta einnig tekið bóklega námið sér og þá verklega seinna en fá reyndar ekki prófskirteini afhent fyrr en bæði verklegt og bóklegt er búið í viðkomandi knapamerki.

Athugið að ekki verður boðið upp á bóklegt nám í knapamerkjum aftur fyrr en næsta haust. Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í haust.

Skráningafrestur er til 10.okt og hægt er að skrá á netfangið ss@fakur.is

Drög að fyrirkomulagi:

Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum í Félagsheimili Fáks.

kl. 17:00 – 19:00 Knapamerki 1 og 2 eru kennd saman. ( 3 skipti)

Kl. 19-21  Knapamerki 3. (3 skipti)

Á þriðjudögum og fimmtudögum er

kl. 17-19 knapamerki 4 (4 skipti)

kl.  19-21 knapamerki 5 (4 skipti)

Þeir sem ætla fara í knapamerki 5 eiga/mega að sitja alla tíma  en þeir taka próf úr öllum knapamerkjastigunum.

Kennari verður Sigrún Sigurðardóttir og mun hún einnig fá gestakennara í lið með sér s.s. Ólöfu Loftsdóttur dýralækni og Sigurð Sæmundsson járningameistara.