Aðalfundur Fáks fer fram þann 29. apríl næstkomandi í félagsheimili Fáks klukkan 20:00.

Fyrir fundinum liggja lagabreytingar sem kynntar voru í fundarboði þann 31. mars síðastliðinn og hægt er að kynna sér <hér>. 

Framboðsfrestur til stjórnar er liðinn og hafa eftirfarandi aðilar gefið kost á sér í stjórn Fáks.

Framboð til formanns:
Hlíf Sturludóttir

Framboð til gjaldkera:
Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir

Framboð til tveggja meðstjórnenda til tveggja ára:

  • Hákon Leifsson, núverandi gjaldkeri býður sig fram til meðstjórnanda
  • Sæmundur Ólafsson
  • Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir, núverandi meðstjórnandi býður sig fram til áframhaldandi setu

Sigrún Valdimarsdóttir gengur úr stjórn.

Uppfært 23. apríl 2025 kl 15:40:

Í fyrra fundarboði var auglýst að kosið yrði um meðstjórnanda til eins árs. Hefur viðkomandi stjórnarmaður, Þormóður Skorri Steingrímsson, ákveðið að sitja áfram (stjórnarmeðlimir eru kostnir til 2 ára) og því er ekki kosið um hans sæti í stjórn.

Jón Guðlaugsson Nielsen dregur framboð sitt til baka.