Nú styttist heldur betur í menntadag A-landsliðis Íslands í hestaíþróttum sem fram fer laugardaginn 16. des í Lýsis höllinni Víðidal. Þar munu okkar fremstu knapar vera með kennslusýningar, auk þess sem skrifað verður undir samstarfssamning milli LH og Háskólans á Hólum og reiðkennari ársins verður heiðraður.
Í hádeginu verður hægt að kaupa frábæran jólahádegisverð framreiddan af snillarkokkum fyrir einungis 3500 krónur.
Húsið opnar klukkan 10:00 á dagskránni verða eftirfarandi kennslusýningar:
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir: Grunnþjálfun
- Gústaf Ásgeir Hinriksson: Hliðarstjórn og hliðarjafnvægi
- Ragnhildur Haraldsdóttir: Form
- Sigurður Sigurðarson: Sótt í rýmið
- Hádegishlé
- Elvar Þormarsson: Lykill að vegferð óvissunnar
- Sara Sigurbjörnsdóttir: Að hafa trú á verkefninu – lokaspretturinn
- Teitur Árnason: Full afköst á skeiði
- Jóhanna Margrét Snorradóttir: Heimsmeistaratitill – Hvað liggur að baki
Dagskrálok um kl 15:00
Miðaverð er 5000 krónur og rennur allur ágóði til landsliðisins.