Á fundi stjórnar Fáks í gær mánudag var farið yfir óleyfisgirðingar á svæðum sem Fákur hefur umráðarétt yfir en það er öll lóðin í kringum Faxaból, lóð við Brekknaás 9, lóð í kringum Hvammsvöll auk túnanna sem Fákur samdi við Reykjavíkurborg um afnot af.

Á fundinum var eftirfarandi samþykkt:

  • Ekki er heimilt að setja upp neinar girðingar á þessum lóðum nema þær séu sérstaklega skilgreindar sem viðrunarhólf.
    • Óheimilt er að setja upp girðingar á bak við Faxaból í skóginum.
    • Óheimilt er að setja upp girðingar á litlum blettum innan Faxabóls og á það t.d. við brekkuna við Vatnsveituveg og blettir í kringum bandagerði.
    • Óheimilt er að setja upp viðrunarhólf á lóð við Brekknaás 5 og 9.

Girðingar sem eru á umræddum svæðum eru óheimilar og eru eigendur þeirra vinsamlegast beðnir um að taka þær niður fyrir föstudaginn 23. maí n.k. Eftir það mun framkvæmdastjóri eða starfsmaður á vegum félagsins fara um svæðið og taka niður allar girðingar sem hafa verið upp settar og ekki tilheyra úthlutuðum beitarhólfum.

Á móti hafa fleiri hólf verið skipulögð á þessum lóðum og má sjá þau hólf í link á Borgarvefsjá hér að neðan.

Opnað hefur verið aftur fyrir skráningar óski fólk eftir viðrunarhólfi. Verður þeim úthlutað eftir því sem umsóknir berast. 

Þar sem góður er kominn vel af stað þá er heimilt að nota viðrunarhólf frá 25. maí næstkomandi.

Í þessum link hér að neðan má sjá uppfærðann lista yfir viðrunarhólf eftir viðbætur (21. maí 2025).