Opið gæðingamót Spretts og Fáks var haldið á Samskipavellinum í Spretti 30.-31.maí. Skráning var heldur dræm en veður var gott og góð stemming meðal keppenda.

Mótið var haldið sameiginlega með hestamannafélaginu Fáki en mótið var opið öllum til þátttöku.

Viljum við þakka sjálfboðaliðum, stjórn og starfsfólki fyrir þeirra framlag til mótsins. Ljósmyndarinn hún Anna Guðmundsdóttir, var að sjálfsögðu á staðnum og hægt er að nálgast myndir hjá henni á annag@visir.is. Eiðfaxi TV var á staðnum og sýndi beint frá mótinu.

Á gæðingamóti Fáks er Gregersen styttan veitt árlega og er handhafi hennar valinn á þann hátt að hann þyki sýna fágaða og íþróttamannslega framkomu, áberandi vel hirt hross og síðast en ekki síst, sé í Fáksbúningi í keppninni. Að þessu sinni hlaut Jón Herkovic styttuna en hann var í úrslitum í B-flokki gæðinga á hryssunni Fanneyju frá Vallarási.

Óskum til öllum keppendum til hamingju með árangurinn.

Hér má sjá úrslit mótsins.

A-flokkur – A úrslit
Sæti Hross Félag Einkunn
1 Gæfa frá Flagbjarnarholti Sveinbjörn Bragason Sprettur 8,52
2 Laufi frá Horni I Súsanna Sand Ólafsdóttir Hörður 8,46
3 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson Fákur 8,39
4 Reyr frá Hárlaugsstöðum 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson Fákur 8,32
5 Galdur frá Kerhóli Guðrún Margrét Valsteinsdóttir Sprettur 8,25
6 Hervar frá Arabæ Janneke M. Maria L. Beelenkamp Hörður 1,88

 

B-flokkur – A úrslit
Sæti Hross Knapi Litur Félag Einkunn
1 Steinar frá Skúfslæk Lárus Sindri Lárusson Jarpur/milli-einlitt Sprettur 8,63
2 Vafi frá Efri-Þverá Halldór Svansson Rauður/milli-blesótt Sprettur 8,53
3 Skriða frá Litla-Dunhaga II Brynja Pála Bjarnadóttir Rauður/milli-blesótt Sprettur 8,45
4 Fanney frá Vallarási Jón Herkovic Brúnn/milli-einlitt Fákur 8,33
5 Fjóla frá Brú Arna Rúnarsdóttir Brúnn/mó-einlitt Jökull 8,31
6 Svás frá Ytra-Dalsgerði Kristinn Hugason Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Sprettur 8,19

 

B-flokkur gæðingaflokkur 2 – A úrslit
Sæti Hross Knapi Litur Félag Einkunn
1 Sproti frá Vindási Auður Stefánsdóttir Rauður/milli-blesótt Sprettur 8,54
2 Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson Rauður/milli-skjótt Fákur 8,46
3 Kylja frá Geitaskarði Sigurður Örn Ágústsson Rauður/milli-stjörnótt Sprettur 8,44
4 Kjalar frá Skjólbrekku Viggó Sigursteinsson Brúnn/mó-einlitt Sprettur 8,29
5-6 Kveikur frá Melkoti Erna Jökulsdóttir Brúnn/milli-stjörnótt Sprettur 8,25
5-6 Freyja frá Skúfslæk Valdís Sólrún Antonsdóttir Rauður/milli-stjörnótthringeygt eða glaseygt Sprettur 8,25
7 Andvari frá Skipaskaga Birna Ólafsdóttir Rauður/milli-einlitt Fákur 8,12
8 Tóta frá Haukagili Hvítársíðu Sigurður Jóhann Tyrfingsson Rauður/milli-skjótt Sprettur 7,52

 

B-flokkur ungmenna – A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Félag Einkunn
1 Aníta Eik Kjartansdóttir Rökkurró frá Reykjavík Brúnn/milli-einlitt Borgfirðingur 8,38
2 Hrafnhildur Klara Ægisdóttir Svenni frá Reykjavík Jarpur/milli-skjótt Fákur 8,29

 

Barnaflokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Félag Einkunn
1 Kristín Rut Jónsdóttir Fluga frá Garðabæ Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,54
2 Sólbjört Elvira Sigurðardóttir Eldþór frá Hveravík Rauður/milli-stjörnóttglófext Fákur 8,47
3 Bryanna Heaven Brynjarsdóttir Magni frá Kaldbak Rauður/milli-einlitt Hörður 8,44
4 Birkir Snær Sigurðsson Laufi frá Syðri-Völlum Rauður/dökk/dr.einlitt Sprettur 8,42
5 Lilja Berg Sigurðardóttir Viljar frá Hestheimum Rauður/milli-stjörnótt Sprettur 8,36
6 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Gnótt frá Syðra-Fjalli I Brúnn/milli-einlitt Fákur 8,34
7 Guðrún Lára Davíðsdóttir Kornelíus frá Kirkjubæ Jarpur/milli-einlitt Fákur 8,32
8 Hilmir Páll Hannesson Sigurrós frá Akranesi Bleikur/fífil-blesótt Sprettur 8,31

 

Unglingaflokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Félag Einkunn
1 Sigurður Ingvarsson Liljar frá Varmalandi Brúnn/milli-einlitt Fákur 8,59
2 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Radíus frá Hofsstöðum Brúnn/milli-stjörnótt Sprettur 8,49
3 Kári Sveinbjörnsson Fáfnir frá Flagbjarnarholti Rauður/milli-blesóttglófext Sprettur 8,29
4 Elena Ást Einarsdóttir Sól frá Stokkhólma Jarpur/dökk-stjörnótt Sprettur 8,20
5 Katla Grétarsdóttir Atlas frá Ægissíðu 4 Bleikur/fífil-stjörnóttglófext Sprettur 7,80
6 Sigríður K. Kristbjörnsdóttir Óskadís frá Reykjavík Rauður/milli-einlitt Jökull 0,00

 

Gæðingatölt fullorðinna – A úrslit
Sæti Hross Knapi Litur Félag Einkunn
1 Yfirvegun frá Efri-Þverá Sigurður Halldórsson Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,57
2 Gjöf frá Flagbjarnarholti Sveinbjörn Bragason Rauður/sót-blesótt Sprettur 8,56
3 Óskadís frá Miðási Katla Gísladóttir Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,36
4 Kjarkur frá Steinnesi Viggó Sigursteinsson Brúnn/milli-einlitt Sprettur 8,34
5 Straumur frá Geitaskarði Sigurður Örn Ágústsson Rauður/sót-stjörnótt Sprettur 8,20
6 Silfra frá Kjóastöðum 3 Gunnar Steinn Gunnarsson Vindóttur/jarp-einlitt Jökull 8,13
7 Dynfari frá Brautarholti Linda Björk Gunnlaugsdóttir Rauður/milli-einlitt Sprettur 8,10

 

Gæðingatölt unglingaflokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Félag Einkunn
1 Kristín Rut Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ Jarpur/milli-einlitt Sprettur 8,77
2 Elísabet Emma Björnsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri Brúnn/milli-einlitt Fákur 8,41
3 Katla Grétarsdóttir Baltasar frá Hafnarfirði Rauður/ljós-stjörnótt Sprettur 8,21