Miðasala á Uppskeruhátíð Fáks og Spretts sem fram fer 22. nóvember hefst á morgun!

  • Miðasala fer fram á heimasíðum félaganna í skráningarformi og opnar hún klukkan 12:00 á hádeg á morgun fimmtudag. Stofnaðar verða kröfur í heimabönkum viðkomandi. 
  • Hvetjum við fólk að skrá sig fyrir miðum tímanlega því takmarkað magn er í boði. 

Uppskeruhátíð Fáks og Spretts fer fram í Arnarfelli í Sprettshöllinni föstudaginn 22. nóvember næstkomandi, húsið opnar 19:00. 

Verðlaunaðir verða knapar í Fáki og Spretti í ungmenna, áhugamanna og meistaraflokki.

Á hátíðinni verður steikarhlaðborð frá Flóru með grillaðri nautalund, steiktri kjúklingabringu ásamt tilheyrandi meðlæti.

Þá mun hljómsveitin The Bookstore Band spila fyrir dansi að borðhaldi og verðlaunaafhendingu lokinni.

  • Miðaverð á steikarhlaðborð og ball 11.900 krónur.
  • Miðaverð á dansleik 2.990 krónur – Miðasala í afgreiðslu á viðburðinum. Húsið opnar 22:30 fyrir ballgesti.