Uppskeruhátíð Fáks og Spretts fer fram í Arnarfelli í Sprettshöllinni föstudaginn 22. nóvember næstkomandi.
Verðlaunaðir verða knapar í Fáki og Spretti í ungmenna, áhugamanna og meistaraflokki.
Á hátíðinni verður steikarhlaðborð með grillaðri nautalund, steiktri kjúklingabringu ásamt tilheyrandi meðlæti.
Þá mun hljómsveitin The Bookstore Band spila fyrir dansi að borðhaldi og verðlaunaafhendingu lokinni.
Miðasala fer fram í gegnum skráningarform á vef Fáks og Spretts fimmtudaginn 14. nóvember. Miðasala opnar á slaginu 12:00 á hádegi.
ATH – TAKMARKAÐ MAGN MIÐA – BÓKIÐ Í TÍMA.
Miðaverð á steikarhlaðborð og ball 11.900 krónur.
Miðaverð á dansleik 2.990 krónur.
Nánar auglýst síðar.