Þá er komið að stærsta hestaíþróttamóti ársins en Reykjavíkurmeistaramót Fáks hefst á morgun þriðjudag með knapafundi í TM Reiðhöllinni klukkan 15:00.
Meðfylgjandi eru uppfærðir ráslistar og endanleg dagskrá mótsins. Minnum keppendur jafnframt á að allar afskráningar skulu fara fram skriflega í dómpalli eftir að mót hefst en fram að því skulu þær sendast í tölvupósti á fakurafskraning@gmail.com