Ákveðið hefur verið að bjóða upp á skráningu í félagshesthús í gegnum skráningarform. Bent er á allar helstu upplýsingar um félagshesthúsið í texta hér að neðan.
Meðfylgjandi auglýsing var birt 5. september:
Opið er fyrir umsóknir í félagshesthús Fáks veturinn 2023 til 2024. Félagshesthúsið er hugsað fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku og eiga ekki aðstandendur í hestamennsku. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
Þau sem sækja um og fá pláss koma með eigin hest og allan búnað tengdan hestinum.
Í hesthúsinu er umsjónarmaður sem hægt er að leita til varðandi létta aðstoð eða ráðleggingar varðandi hestana. Iðkendur eru hvattir til að sækja námskeið á vegum félagsins sem í boði eru yfir veturinn.
Hægt er að nýta frístundastyrki bæjarfélaganna við greiðslu á plássi fyrir hestinn.
Skilyrði fyrir umsókn:
- Sá aðili sem sótt er um fyrir sé milli 10-18 ára aldurs. Ungmenni allt að 21 árs geta sótt um en 10-18 ára ganga fyrir.
- Sá aðili sem sækir um hefur hug á að taka virkan þátt í félagshesthúsi Fáks, sinnir sínum hesti og tekur þátt í að vinna þau verk sem þarf að vinna í félagshesthúsinu.
- Hestur sem sótt er um pláss fyrir er taminn og laus við húslesti. Umsjónarmaður hesthúss sér um að raða hestum í stíur. Ekki er hægt að sækja um eins hesta stíur.
- Allir umsækjendur fá póst hvort þeim hafi verið úthlutað plássi eða ekki.
- Barn/unglingur verður skráð í hestamannafélagið Fák ef það er ekki félagi fyrir.
- Foreldrar og forráðamenn skulu vera skuldlausir við félagið.
- Mánaðargjald per hest fyrir börn-unglinga-ungmenni er 32.000 krónur. Innifalið eru gjafir, hey og undirburður.
Tímabil í boði:
- 1. október til 31. desember – Hægt er að framlengja leigu að tímabili loknu.
- 1. nóvember til 31. janúar – Hægt er að framlengja leigu að tímabili loknu.
- 1. desember til 29. febrúar – Hægt er að framlengja leigu að tímabili loknu.
Skráning fer fram í gegnum Sportabler.com
Eftir áramót verða næstu leigutímabil stofnuð.
ATH – Leigjendur eiga að vera farnir með hesta sína í síðasta lagi 15. júní 2024 vegna Landsmóts í Víðidal. Þetta á ekki við þá leigjendur sem hafa öðlast keppnisrétt á mótinu.