Vegna dræmrar mætingar á Þorrahlaðborð Fáks undanfarin 2 ár hefur verið ákveðið að halda ekki viðburðinn í ár.
En örvæntið ekki því félagar okkar í Spretti verða með Þorrablót sitt næstkomandi laugardag, 3. febrúar, og eru Fáksfélagar velkomnir að halda upp á þorrann með þeim í veislusal félagsins í Sprettshöllinni.
Borðapantanir/miðapantanir fara fram í gegnum netfangið Sprettur@sprettarar.is,
Panta verður miða/borð fyrir 31.jan
Miðaverð er 11.900kr – eingöngu verður hægt að panta miða í forsölu.
- Hreimur Örn Heimisson verður veislustjóri kvöldsins.
- Sprettskórinn tekur nokkur lög.
- Uppboð verður á folatollum á vegum hrossaræktarnefndar Spretts.
- DJ Atli Kanill mun svo halda uppi stuðinu á dansgólfinu fram á nótt.
Hvetjum hestafólk um að sameinast og skemmta sér á Þorrablóti Spretts.
Miðar verða afhentir á föstudag, 2.feb kl 18-19 í Samskipahöllinni.