Já, það verða súrir pungar, súrmatur, hangikjöt, saltkjöt, harðfiskur, svið og allur almennur og góður þorramatur á boðstólum á Þorrablóti Fáks að ógleymdum sætum pungum og gellum sem mæta á svæðið til að gæða sér á matnum.

Þorrareiðtúrinn með Ómari og Þorra verður á sínum stað þar sem verður að venju riðið upp í Almannadal. Lagt af stað frá TM-Reiðhöllinni kl. 14:00 og eru léttar veitingar í áningu.

Allir að mæta í reiðtúrinn og hafa gaman saman og skella sér svo á Þorrahlaðborðið á eftir sem verður í TM-Reiðhöllinni  þann 13. janúar. Húsið opnar kl. 17:00 (matur á hlaðborði frá kl. 17:30) og stendur veislan fram eftir kvöldi en matur verður á borðum til kl. 20:00. Matur, söngur og gleði – hvað er hægt að hugsa sér betra.

Verð kr. 3.900 (1.000 kr. fyrir 11-14 ára en frítt fyrir 10 ára og yngri)

Allir velkomnir á Þorrablót hjá Fáki 🙂