Hið árlega T7 töltmót Fáks verður haldið í TM-Reiðhöllinni laugardaginn 5. febrúar næstkomandi. Mótið hefst klukkan 12:00 á pollaflokki.

Mótið er eingöngu fyrir félaga í Fák og hugsað fyrir minna vana keppendur. Við hvetjum alla áhugasama til að taka þátt.

Keppnisfyrirkomulagið er mjög einfalt, í forkeppni eru 2 til 3 inn á í einu, riðið er hægt tölt og svo snúið við og sýnd frjáls ferð á tölti.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Pollaflokkur – Teymdir og ríðandi
  • Barnaflokkur minna vanir – Í Sportfeng merkt: Barnaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 2
  • Barnaflokkur meira vanir – Í Sportfeng merkt: Barnaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
  • Unglingaflokkur – Í Sportfeng merkt: Unglingaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
  • Ungmennaflokkur – Í Sportfeng merkt: A flokkur ungmenna – Gæðingaflokkur 1
  • Fullorðinsflokkur – Minna vanir Í Sportfeng merkt: B flokkur – Gæðingaflokkur 1
  • Fullorðinsflokkur – Meira vanir – Í Sportfeng merkt: A flokkur – Gæðingaflokkur 1

Áskilinn er réttur til að sameina flokka.

Í polla- og barnaflokki er ekkert þátttökugjald en 2.000 kr í aðra flokka.

Skráning fram dagana 1.-4. febrúar næstkomandi á www.sporfengur.com
Foreldrar polla vinsamlega skráið þá  <hér>.

Sé óskað aðstoðar við að skrá á mót þá vinsamlega komið við á skrifstofu í TM-Reiðhöllinni 4.-7. febrúar næstkomandi.

Óskað er eftir aðstoð í eftirfarin störf meðan á mótinu stendur:

  • Hliðgæsla – Stjórnar umferð inn á völlinn
  • Aðstoðamaður dómara
  • Þulur
  • Aðstoð við uppsetningu á velli og að ganga frá eftir mót.

Áhugasamir vinsamlega sendið póst á einar@fakur.is