Laugardaginn 6. október verður haldið stórglæsilegt herrakvöld í félagsheimili Fáks.
Húsið opnar með fordrykk kl 19.00. Hið margrómaða villibráðarhlaðborð verður á sínum stað. Veislustjóri verður enginn annar en Sigurður Svavarsson. Andri Ívarsson verður með uppistand. Happdrættið verður einnig á sínum stað.
Dansleikurinn hefst kl 11. Frítt fyrir konur á ballið. Danshljómsveit Margrétar Friðriks sér um fjörið.
Miðasala hófst mánudaginn 1. október í Skalla, Hraunbæ. Miðaverð er kr 8.000.-