Á stjórnarfundi þann 19. janúar síðastliðinn var samþykkt að stofnaður yrði afreks- og hvatningarsjóður í Fáki. Sjóðurinn er hugsaður fyrir hestaíþróttafólk Fáks í yngri flokkum, þ.e. börnum ,unglingum og ungmennum. Fjárhagslegur styrkur verður veittur vegna námskeiða, æfinga, þjálfunar og/eða keppni, sem og til þátttöku á stórmótum. Þannig er hestaíþróttafólki Fáks búin betri aðstaða til ástundunar íþróttar sinnar og til þess að ná betri árangri.

Sjóðurinn er fjármagnaður með framlagi félagsins að því gefnu að hagnaður sé af starfsseminni. Stjórn hefur heimild til að ráðstafa 5-10% hagnaðar fyrir fjármagnsliði og afskriftir til sjóðsins. Stofnfjárframlag verður 10% af hagnaði fyrir fjármagnsliði og afskriftir ársins 2025.

Í úthlutnarnefnd sjóðsins sitja Ívar Hauksson sem formaður nefndarinnar, yfirþjálfari félagsins Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir og Sigurbjörn Bárðarson.

Auglýst verður eftir umsóknum í sjóðinn í september næstkomandi.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í meðfylgjandi link: