Eitt af skemmtilegustu atriðunum á Hestadögum í Reykjavík er Skrúðreiðin niður við Tjörnina laugardaginn 6. apríl nk. Hilmar Guðmannsson heldur utanum um Fákshópinn ásamt Þorra og allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessari skrúðreið þurfa að senda póst á hilmar@skalabrekka.is
Þar þarf að koma fram nafn, fjöldi, símarnúmer og hvort það er laust pláss í hestakerru eða hvort það vanti far. Æskilegt er að knapar séu snyrtilega klæddir (í félagsbúningu, jakka merktum Fáki, lopapeysum eða öðrum fallegum reiðfatnaði)

Dagskrá Skrúðreiðar (mæting um 12:30)

Kl. 13:00 – Skrúðreið frá BSÍ – ca. 150 hestar – BSÍ, upp á Skólavörðuholt, niður Skólavörðustíg, yfir Lækjargötu, Austurstræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti og Tjarnargata að Ráðhúsi, áfram Tjarnargötu, í gegnum Hljómskálagarð, yfir Njarðargötu og aftur að BSÍ.