Á Uppskeruhátíð Fáks verður afreksfólk félagsins heiðrað eins og undanfarin ár.  Eins og í fyrra verður heiðrað fyrir besta keppnisárangur í hverju flokki.

  • Besti keppnisárangur í barnaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í unglingaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í ungmennaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í áhugamannaflokki, kona og karl
  • Íþróttakona og íþróttamaður Fáks

Viðmiðunarreglurnar má sjá hér.

Við óskum eftir upplýsingum um árangur Fáksfélaga á mótum keppnisárið 2018. Knapar eða forráðamenn knapa þurfa að senda upplýsingar um árangur á netfangið marianna@arbae.is í síðasta lagi 20. nóvember til að teljast gjaldgengir til verðlauna.