Reykjavíkurmeistaramót Fáks verður haldið í Víðidal dagana 17.-23. júní næstkomandi. Mótið er eitt af fimm World Ranking mótum ársins á Íslandi.

Á stórmóti sem þessu vantar sjálfboðaliða í ýmiss störf og biðjum við þá sem geta lagt okkur lið, þó það væri ekki nema dagpart, að senda okkur póst á einar@fakur.is

Skráning er opin á mótið frá 6.-10. júní og fer skráning fram á skraning.sportfengur.com

Athugið að allar skráningar verða að fara í gegnum Sportfeng og spurningar varðandi skráningar skal senda skriflega á skraning@fakur.is
Skráningar sem berast eftir að tilskilinn frestur rennur út verða ekki teknar gildar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

1 Tölt T1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur
2 Tölt T1 Ungmennaflokkur
3 Tölt T2 Opinn flokkur – Meistaraflokkur
4 Tölt T2 Ungmennaflokkur
5 Tölt T3 Opinn flokkur – 1. flokkur
6 Tölt T3 Opinn flokkur – 2. flokkur
7 Tölt T3 Unglingaflokkur
8 Tölt T3 Barnaflokkur
9 Tölt T4 Opinn flokkur – 1. flokkur
10 Tölt T4 Unglingaflokkur
11 Tölt T7 Opinn flokkur
12 Tölt T7 Unglingaflokkur
13 Tölt T7 Barnaflokkur
14 Fjórgangur V1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur
15 Fjórgangur V1 Ungmennaflokkur
16 Fjórgangur V2 Opinn flokkur – 1. flokkur
17 Fjórgangur V2 Opinn flokkur – 2. flokkur
18 Fjórgangur V2 Unglingaflokkur
19 Fjórgangur V2 Barnaflokkur
20 Fimmgangur F1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur
21 Fimmgangur F1 Ungmennaflokkur
22 Fimmgangur F2 Opinn flokkur – 1. flokkur
23 Fimmgangur F2 Opinn flokkur – 2. flokkur
24 Fimmgangur F2 Unglingaflokkur
25 Skeið 250m P1 Opinn flokkur
26 Skeið 150m P3 Opinn flokkur
27 Gæðingaskeið PP1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur
28 Gæðingaskeið PP1 Opinn flokkur – 1. flokkur
29 Gæðingaskeið PP1 Opinn flokkur – 2. flokkur
30 Gæðingaskeið PP1 Ungmennaflokkur
31 Gæðingaskeið PP1 Unglingaflokkur
32 Flugskeið 100m P2 Opinn flokkur

*Sé skráning undir 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit
*Sé skráning undir 10 í flokki er fellur flokkur niður

Skráningargjöld eru eftirfarandi:
6.500 kr – Meistaraflokkur og Ungmennaflokkur (nema gæðingaskeið 6.000.-)
6.000 kr – 1.Flokkur, 2. Flokkur
4.500 kr – Unglingar og barnaflokkur
4.500 kr – Kappreiðaskeið

Hér í link má finna nýjustu útgáfu af lögum og reglum LH og FEIF. Keppendur eru ábyrgir fyrir að kynna sér þær:
https://www.lhhestar.is/is/log-og-reglur