Skráning á Reykjavíkurmeistaramót Fáks er opin frá og með deginum í dag, 1. júní og til miðnættis 8. júní.
Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2021“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.
Skráning fer fram á Sportfeng: https://skraning.sportfengur.com.
Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
- Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
- Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
- Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og/eða FEIF.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- 7.800 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.300)
- 7.300 kr – 1. og 2. flokkur
- 5.700 kr – barna- og unglingaflokkur
- 5.700 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið
Það verður að venju mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um og allir velkomnir að koma og fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum!
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka náist næg þátttaka:
| 1 | Tölt T1 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 2 | Tölt T1 | Ungmennaflokkur |
| 3 | Tölt T2 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 4 | Tölt T2 | Ungmennaflokkur |
| 5 | Tölt T3 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 6 | Tölt T3 | Opinn flokkur – 1. flokkur |
| 7 | Tölt T3 | Opinn flokkur – 2. flokkur |
| 8 | Tölt T3 | Ungmennaflokkur |
| 9 | Tölt T3 | Unglingaflokkur |
| 10 | Tölt T3 | Barnaflokkur |
| 11 | Tölt T4 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 12 | Tölt T4 | Opinn flokkur – 1. flokkur |
| 13 | Tölt T4 | Opinn flokkur – 2. flokkur |
| 14 | Tölt T4 | Ungmennaflokkur |
| 15 | Tölt T4 | Unglingaflokkur |
| 16 | Tölt T4 | Barnaflokkur |
| 17 | Tölt T7 | Opinn flokkur – 2. flokkur |
| 18 | Tölt T7 | Unglingaflokkur |
| 19 | Tölt T7 | Barnaflokkur |
| 20 | Fjórgangur V1 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 21 | Fjórgangur V1 | Ungmennaflokkur |
| 22 | Fjórgangur V2 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 23 | Fjórgangur V2 | Opinn flokkur – 1. flokkur |
| 24 | Fjórgangur V2 | Opinn flokkur – 2. flokkur |
| 25 | Fjórgangur V2 | Ungmennaflokkur |
| 26 | Fjórgangur V2 | Unglingaflokkur |
| 27 | Fjórgangur V2 | Barnaflokkur |
| 28 | Fimmgangur F1 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 29 | Fimmgangur F1 | Ungmennaflokkur |
| 30 | Fimmgangur F2 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 31 | Fimmgangur F2 | Opinn flokkur – 1. flokkur |
| 32 | Fimmgangur F2 | Opinn flokkur – 2. flokkur |
| 33 | Fimmgangur F2 | Ungmennaflokkur |
| 34 | Fimmgangur F2 | Unglingaflokkur |
| 35 | Skeið 250m P1 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 36 | Skeið 150m P3 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 37 | Gæðingaskeið PP1 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |
| 38 | Gæðingaskeið PP1 | Opinn flokkur – 1. flokkur |
| 39 | Gæðingaskeið PP1 | Opinn flokkur – 2. flokkur |
| 40 | Gæðingaskeið PP1 | Ungmennaflokkur |
| 41 | Gæðingaskeið PP1 | Unglingaflokkur |
| 42 | Flugskeið 100m P2 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur |