Reiðhallarlyklar fyrir árið 2023 munu birtast í heimabanka lyklahafa næstu daga.

Gjaldskrá er eftirfarandi fyrir árið 2023:

Lykill 1 – 60.000 krónur
Lykill 2 – 20.000 krónur

Nánar um gjaldskrá og opnunartíma lyklanna í þessum link. 

Ætli lyklahafi ekki að endurnýja árgjaldið fyrir 2023 lokast lykillinn sjálfkrafa 31. janúar. Þá falla ógreiddar kröfur sjálfkrafa niður þann 11. febrúar næstkomandi svo það er óþarfi að hafa samband við skrifstofu með ósk um niðurfellingu krafna.

Frá og með 2. janúar eru lyklar 2 opnir eins og auglýst er í gjaldskrá, virka daga frá 14:00 til miðnættis og um helgar frá 06:00 til miðnættis.

Biðjum við lyklahafa að skoða vel reiðhallardagatal TM-reiðhallarinnar áður en æfingar eru skipulagðar. Nú er annasamasti tíminn framundan og hluti hallarinnar mikið bókaður seinnipartinn og fram á kvöld.