Gott er að þjálfa í TM-Reiðhöllinni hjá Fáki en nú um og eftir helgina mun aðgangslykilinn gilda. Aðsókn í TM-Reiðhöllina hefur aukist mikið enda hún mikið meira opin fyrir almennan hestamann en undanfarin ár. Reykjavíkurborg á Reiðhöllina og rekur Fákur hana í samstarfi við þá, en hún rekur sig ekki sjálf og því þurfa hestamenn að leggja sitt af mörkunum til að borga eitthvað af föstum rekstrarkostnaði s.s. rafmagn.

Til áréttingar þá er TM-Reiðhöllin aðeins fyrir Fáksfélaga svo allir þeir sem vilja þjálfa í TM-Reiðhöllinni þurfa að vera Fáksfélagar og greiða árgjaldið í TM-Reiðhöllina. Aðgangslykillinn tekur gildi um helgina svo þeir sem ætla að nota höllina þurfa að leggja inn á 0535-26 -1933 kt. 520169-2969 og þá verður aðgangslykillinn virkjaður. Þeir  sem finna ekki sinn lykil verða þá að fá nýjan og kostar hann kr. 500 en þeir sem eru nýjir þurfa að koma við í TM-Reiðhöllinni og fá nýjan aðgangslykil.

Allur dagurinn kr. 35.000

Frá kl. 14:00-22:00 og um helgar kr. 6.500