Stjórn Fáks hefur á haustmánuðum hafið vinnu við að skrifa reglur, stefnur og viðbragðsáætlanir fyrir félagið. Er þetta hluti af vinnu við að verða fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Um fyrirmyndarfélag segir á heimasíðu ÍSÍ:

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþrótta-hreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Íþróttafélög og deildir innan félaga geta sótt um viðurkenningu til ÍSÍ að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar viðurkenning hefur verið veitt gildir hún í fjögur ár.

Viðurkenningunni fylgja ýmsir kostir. Handhafar hennar hafa samþykkt stefnur og viðbragðsáætlanir í flestum þeim málum er snúa að íþróttastarfi. Fjölbreytt markmið með starfinu liggja fyrir og það eitt og sér eykur líkur á því að allir sem koma að starfinu með einum eða öðrum hætti rói í sömu átt, félaginu til heilla og framfara. Siðareglur liggja fyrir, persónuverndarstefna er klár auk stefna í fræðslu- og forvarnarmálum, jafnréttismálum, umhverfismálum og félagsmálum svo eitthvað sé nefnt. Benda má á að sveitarfélög gera í auknum mæli kröfur til íþróttafélaga um að hafa þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.

Stjórn hefur þegar samþykkt siðareglur, hegðunarviðmið, viðbragðsáætlun og persónuverndarstefnu á fundum haustsins.

Hvetjum við alla félagsmenn til að kynna sér þetta í meðfylgjandi link: