Þriðjudaginn 16. nóvember hefjast paratímar með Ragnhildi Haraldsdóttur reiðkennarar. Ragnhildur Haraldsdóttir er starfandi tamningamaður og reiðkennari. Hún hefur stundað hestamennsku frá barnsaldri og starfað við þjálfun hrossa í fjölda ára. Hún útskrifaðist sem reiðkennari C frá Hólum árið 2011 og starfar sjálfstætt á Selfossi sem tamningamaður og knapi. Hún hefur gert það afar gott á keppnis- og kynbótabrautinni síðastliðin ár.

Ragnhildur mun bjóða upp á fjóra 40 mínútna paratíma á þriðjudögum tímabilið 16. nóv til 7. des. Tímarnir verða sniðnir þörfum knapa og hests og eru afar góður undirbúningur fyrir komandi tímabil.

Verð 27.000 kr. og skráning inn á www.sportfengur.com