Opinn kynningarfundur um Landsmót hestamanna verður haldinn í TM-Reiðhöllinni miðvikudaginn 28. febrúar klukkan 18:00. Framkvæmdastjóri Landsmóts kynnir stöðu mála og boðið verður upp á súpu.

Mótið fer fram í Víðidalnum 1.-8. júlí nk. og undirbúningur er í fullum gangi. Hvað er búið að gera? Hvað á eftir að gera? Hvar vantar fólk til að leggja hönd á plóg?

Fjölmennum og tökum þátt í að búa til besta Landsmót frá upphafi!