FEIF Youth Cup 2018 verður haldið í Axevalla Travbana í Svíþjóð 28. júlí – 4. ágúst og er fyrir unglinga sem verða 14-17 ára 2018. Youth Cup er alþjóðleg keppni þar sem keppt er í T7, T3, T6, PP2, P2, V2, F2, V5, FR1, TR1, CR1, TiH Level 1, FS3, Team test. Hér fyrir neðan eru upplýsingar og umsóknareyðublað fyrir þá sem vilja sækja um.

Umsóknarfrestur til að sækja um Youth-Cup rennur út 1.mars næstkomandi. Ísland fær að senda 8 fulltrúa á mótið og mun æskulýðsnefnd LH fara yfir allar umsóknir sem berast skrifstofunni.  Allar nánari upplýsingar má finna hér.