Opnað hefur verið fyrir skráningar á opna WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks sem fram fer dagana 12.- 18. júní n.k. Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR 12. – 18. júní“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráningar í greinar fara fram á vef Sportfengs, IS2023FAK149 og henni lýkur á miðnætti 5. júní.
Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is.

  • Skráningar sem berast eða eru ógreiddar eftir að skráningarfresti lýkur verða ekkiteknar gildar.
  • Skráum í tíma svo vandamál sem upp geta komið í skráningu séu leyst áður en frestur rennur út.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 9.000 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2, F2 8.500 kr)
  • 8.500 kr – 1. og 2. flokkur
  • 6.500 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 6.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

Greinar og flokkar í boði:

  • T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
  • T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
  • T3 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • T4 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
  • V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
  • V2 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • V5 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
  • F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
  • F2 – unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • P1 250m skeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
  • P2 100m skeið – meistaraflokkur, 1. flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur.
  • P3 150m skeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
  • PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.

Það verður að venju mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga og RÚV mun sýna beint frá úrslitum í ungmenna- og meistaraflokkum eftir hádegi sunnudaginn 18. júní.

Fáksmenn bjóða öll velkomin að fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum.

Framkvæmdastjóri: Einar Gíslason
Mótsstjóri: Hilda Karen Garðarsdóttir
Vallarstjóri: Þórir Örn Grétarsson
Yfirdómari: Sigurður Emil Ævarsson